Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

AðstandendaKraftur – stuðningshópur

9. febrúar 2022 @ 20:00 - 21:30

Aðstandendakraftur

AðstandendaKraftur er stuðningshópur fyrir aðstandendur sem eiga ástvin sem greinst hefur með krabbamein. AðstandendaKraftur var stofnaður af aðstandendum fyrir aðstandendur og hittist tvisvar í mánuði annað hvort í Skógarhlíð 8 eða í rafrænum heimi á Teams.

DAGSKRÁ FEBRÚAR

Í febrúar ætlum við að breyta aðeins til og bjóða  upp á hópaskipta hittinga. Annað kvöldið ætlum við að bjóða mökum upp á vettvang til að deila áskorunum og sigrum með einstaklingum í sömu sporum og hitt kvöldið viljum við bjóða nánum aðstandendum, foreldrum, systkinum og vinum að koma. 

FRESTAÐ – 9. FEBRÚAR – MAKA KVÖLD

  • Guðrún Sesselja félagmaður Krafts kemur og deilir sinni reynslu af því að vera maki einstaklings sem greinst hefur með krabbamein

23. FEBRÚAR – AÐSTANDENDA KVÖLD

  • Arnar Sveinn og Hrefna deila sinni reynslu af því að vera náinn aðstandandi krabbameins greinds einstaklings.

Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum

 

Umsjónarmaður hópsins er Hrefna Björk Sigvaldadóttir starfsmaður Krafts en hún hefur sjálf reynslu af því að vera aðstandandi.
Hægt er að ná í Hrefnu í síma 866-9698 eða í gegnum hrefna@kraftur.org, en einnig er hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.

Upplýsingar

Dagsetning:
9. febrúar 2022
Tímasetning:
20:00 - 21:30
Series:
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/238008991855890

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website