Við hjá Krafti erum búin að vera hlýða Víði og fylgja leiðbeiningum frá Almannavörnum og gerum það vissulega áfram en frá og með deginum í dag verður hægt að panta tíma í einstaklingsviðtöl hjá sálfræðingi eða markþjálfa. Skrifstofan okkar er líka opin núna alla virka daga frá kl. 9-16.
Æfingar hjá FítonsKrafti munu ekki hefjast strax en þú getur óskað eftir fjarþjálfun hjá Atla þjálfara.
Það verður engin eiginleg dagskrá hjá okkur í Krafti í formi viðburði núna í maí en við vekjum hins vegar athygli á að við erum alltaf til staðar fyrir þig og þú getur komið í heimsókn til okkar í Skógarhlíðina, sent okkur póst á kraftur@kraftur.org eða hringt í síma 866-9600. Þá erum við að deila ýmsu spennandi efni inn á vefsíðu félagsins sem og hagnýtum greinum inn á hóp félagsmanna á Facebook.
Við metum stöðuna daglega til að tryggja öryggi þeirra sem til okkar leita.
Vinsamlegast hafið í huga að ef þið finnið fyrir flensueinkennum er mikilvægt að fresta heimsókn til okkar og endurbóka tíma.
Sýnum áfram ábyrgð – því við erum jú öll almannavarnir.