Skip to main content

Perlað af Krafti í Hörpu

Sunnudaginn 22. maí ætlar Kraftur með hjálpa allra landsmanna að slá eigið íslandsmet í að perla armbönd. Kraftur verður með opið í hús í Hörpu frá kl. 13:00 til 17:00 og hvetur landsmenn alla til að mæta og leggja hönd á perlu.

Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem fer í sölu í maí en armbandið verður selt í takmörkuðu upplagi. Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.

Endilega skráðu þig hér og kíktu á Facebook viðburðinn okkar þar sem við munum setja inn frekari upplýsingar. Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt Hörpu.

Lofum skemmtilegri dagskrá en hún verður auglýst síðar

Þetta er tilvalið tækifæri til að eiga góða og skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið.

Ef þú býrð á Akureyri og nágrenni þá verðum við með svipaðan perluviðburð í Brekkuskóla þann 28. maí milli 13:00 og 17:00.

Hlökkum til að sjá þig !