Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

StelpuKraftur – Sumarfögnuður

19. júní @ 20:00 - 22:00

Sumarfögnuður StelpuKrafts verður haldinn miðvikudaginn 19.júní frá kl. 20-22 þar sem við fögnum sumarsólstöðum og þökkum fyrir samveruna í vetur. Verður þetta síðasti viðburður hópsins fyrir sumarfrí.
Viðburðurinn verður haldinn í salnum Leiðin heim – Holistic center, Laugarvegi 178.  Áróra Helgadóttir jógakennari með meiru mun leiða stundina.

Nánari upplýsingar og skráning inn á Facebook hóp StelpuKrafts.

StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 – 40 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist að jafnaði annan hvern miðvikudag ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.

Umsjón með hópnum hefur Linda Sæberg, félagsmaður í Krafti, og Hulda Hjálmarsdóttir, starfsmaður hjá Krafti. Þær hafa báðar reynslu af því að greinast ungar með krabbamein

Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á FB – hóp StelpuKrafts  og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér.

Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.

Upplýsingar

Dagsetning:
19. júní
Tímasetning:
20:00 - 22:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/groups/523414461431494/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Leiðin heim – Holistic center
Laugavegur 178
Reykjavík, 105 Iceland
+ Google Map