Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.
Event Series Event Series: Stuðningsfulltrúanámskeið

Stuðningsfulltrúanámskeið

23. maí 2022 @ 17:00 - 21:00

Ertu góðhjartaður reynslubolti sem villt nýta reynslu þína öðrum til góða? 

Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í Stuðningsnetinu verður haldið í tveimur pörtum mánudagana 23. og 30. maí, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustunnar á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Námskeiðið er bæði ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og hafa lokið við krabbameinsmeðferð sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem lenda í svipuðum sporum. 

Til að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig á netfanginu thorri@krabb.is eða með því að fylla út þetta skráningarform. Boðið verður upp á kvöldmat bæði kvöldin í boði Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem starfrækja Stuðningsnetið.

Frekari upplýsingar má sjá hér.

„Það sem hjálpaði mest var að hitta aðra sem höfðu lent í svipuðum sporum, Kraftur bjargaði geðheilsunni minni….“

26 ára félagsmaður sem greindist með ristilkrabbamein

 

Upplýsingar

Dagsetning:
23. maí 2022
Tímasetning:
17:00 - 21:00
Series:
Vefsíða:
https://kraftur.org/thjonusta/studningsnetid/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website